Nú teljum við niður...

Auglýsing

Könnun

Stóra búningamálið?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

jæja

17. nóvember 2006 klukkan 05:28
núna vona ég allir séu búnir að vera rosalega duglegir að hringja í fólk og taka niður skráningu á fullu.. það væri gaman að heyra í hinum hvernig gengur og svoleiðis..
í mínum bekk er ég búin að ná á Elvu, Gunnari, Steina, Einari, Skarphéðni og Marsibil, og ætla þau öll að mæta nema Einar sem verður fyrir sunnan.. ég finn ekki Óskar Pétur og næ ekki á Palla, en ef þið heyrið í þeim eða af þeim megið þið segja þeim frá þessu eða frá því að ég sé að leita að þeim :)

annars ef einhverjir eru að skoða þessa síðu sem ekki er búið að hringja í, enn voru í árskógarskóla á þessum árum getið þið skráð ykkur hjá þessum aðilum

árgangur 82 Maddi 8622211 eða Hólmar 6956381
árgangur 83 Lísbet 8686735
árgangur 84 Inga Rut 8688808
árgangur 85 Jón Geir 8651991
árgangur 86 og 87 Svenni 8673900
árgangur 88 Magga 8476916

og við að sjálfsögðu vonumst til að sjá sem flesta, og vonum að flestir sem maður hefur ekki hitt svo lengi lengi sjái sér fært um að koma, þótt tímasetningin sé ekkert rosalega góð upp á þá sem búa langt í burtu...

en það sem strákarnir voru að ræða um í commentunum á hinni færslunni er það að meðal skemmtiatiða er Fíllinn með uppistand.. ef einhver veit ekki hver fíllinn er þa´var hann kosinn fyndnasti maður íslands fyrir nokkrum árum síðan og er með klikkað uppistand sem verður gaman að hlusta á og veltast um af hlátri með ykkur..

annars er fátt nýtt að frétta nema það að ég er mjög ánægð með það hvað fólk tekur vel í þetta, og er spennt fyrir þessu, alveg sama við hvern maður talar, allir mjög ánægðir með þetta, og vonum bara að allt gangi upp :D

annars heyrði ég það í útvarðinu um daginn að 22. Desember næstkomandi er alþjóðlegur dagur fullnægingarinnar.. bara gaman að því og langaði að deila því með ykkur...

já og svo eru það náttúrulega búningarnir, er búin að liggja með höfuðið í bleyti og vona að þið séuð að því líka, svo við verðum öll í flottum búningum þegar við förum í bæinn um kvöldið ;)
 en annars vona að sem flestir viti af þessari síðu, og þið sem lesið hana megið endilega koma því áfram að hún sé til ;)

takk fyrir mig
fyrir hönd nefndar Inga Rut
Nefndin
Þokkalega mæti ég á svæðið!! Lýst ekkert smá vel á þetta. Geggjað.
Búningur segiru? Sjæse.. maður reynir ;) Annars held ég að við ættum bara að fara að dæmi Trausta hérna í kommentunum fyrir neðan og mæta bara öll nakin! Sérstaklega þar sem þetta er dagur fullnægingarinnar! ;)
En Jón Geir. Viltu skrá mig niður? Á svolítið erfitt með að hringja vegna tímamismunarins... ;)

En hvernig er þetta með árgang 83 og 82.. maður hefur eitthvað lítið heyrt í þeim? Kannski af því maður er ekki á landinu? Hmm..

En hvað segiði með að þeir sem geta/vilja mæti með myndir úr árskógsskóla og deili þeim með liðinu?
T.d. gæti verið einhver sem sér sérstaklega um myndir og þá eiga allir að koma myndum til sá manneskju (merkja þær aftaná!) og sú manneskja kennaratyggjóar-myndirnar á stórt spjald! Er þetta kannski of mikið vesen?
Held bara að það væri alveg ógeðslega gaman að sjá gamlar myndir...

Og líka gömul Video? T.d. gamlar skólaskemmtanir? Er það ekki málið eða?

Ohh hvað mig hlakkar til!!
17. nóvember 2006 klukkan 07:31
Inga Rut
 
ohh Hanna mín.. við erum svo langt á undan þér ;) hehehe
jújú þetta er allt saman í vinnsku, veit reyndar ekki hvort það verður kennaratyggjó, eða bara slide show, eins og við gerðum í den þegar við vorum veislustjórar hjá Gunna..
en það er æðislegt að þú ætlir að mæta músin mín :D
það er alveg hægt að skoða nöktu hugmyndina.. en þá þurfa líka allir að vera naktir svo þeim líði ekki illa sem mæta í fötum ;) hahaha
kemur allt í ljós.. veit ekki með 83-82, hvort þau gleymi að láta vita af síðunni eða eitthvað.. vonum ekki...
túrilús ..
17. nóvember 2006 klukkan 18:59
HAHA alþjóðlegur dagur fullnægingar... erum við að bjóða liðinu í einn heljarstóran skandal bara..? ;) haha ótrúlegt... inga gleymdum við að setja búningakeppni inn sem dagskrárlið eða..? :)
18. nóvember 2006 klukkan 01:16
magga
 
það væri nú pínu sniðugt að hafa búningakeppni :)
ekki vissi ég nú að dagur fullnægingar væri til.. hehe alltaf að heyra og læra eikað nýtt...
18. nóvember 2006 klukkan 06:18
Inga Rut
 
nákvæmlega ;)
ég vona að mig hafi ekki bara dreymt það hahahah :D
nei þetta er eitthvað til að stuðla að heimsfriði vegna þess að það skapast svo mikil hormón, man ekki hvað þau heita.. við fullnægingu og fólk verður svo hamingju samt og þennan dag eiga allir að fá eitt stykki fullnægingu til þess að leysa úr læðingi þetta hormón út í andrúmsloftið.. allt rosalega vísindalegt eitthvað.. heyrði það alla vega í útvarpinu :D

en já mér líst rosalega vel á að hafa búninga keppni, þá leggja allir meira í búningana sína.. gera þetta almennilega fyrst við erum að gera þetta á annað borð!!

er fólk ekki alveg með í því?
endilega segja álit sitt á því.....
18. nóvember 2006 klukkan 06:54
steinunn
 
æðisleg síða hjá ykkur elskurnar ég fer í það að láta halldór,sirrý og halldísi vita að þeeu öllu en sjáumst sem fyrst ;);)
18. nóvember 2006 klukkan 21:31
Palli
 
Gjee...sorry að ég skildi ekki svara símanum! Missti af þér!

Anyways, ég var nú reyndar búinn að panta mér flug frá Reykjavík til Egilsstaða 22.des en mar reynir eitthvað að snúa því við! Soldið glatað að það sé ekki flogið á milli Akureyrar og Egilsstaða lengur því á væri þetta ekkert mál!

Ég er alveg viss um að þetta verður mjög gaman...ég kem ef ég get!
21. nóvember 2006 klukkan 18:11
Inga Rut
 
fráááábært :D
lýst vel á þig Palli.. þá er alveg hörkugóð mæting úr okkar bekk :D
22. nóvember 2006 klukkan 01:57
Já KOMA SVO PALLI! Það væri MAGNAÐ að hitta þig á skólamótinu. Hef ekki séð þig frá því að þú komst á þorrablótið! Sá samt held ég mynd af þér hjá Helgu og Binna þegar þú og kærastan fóruð að hitta hann Dag Snæ ;) Lítill heimur..

Ég get ekki beðið eftir þessum hittingi!! Djöfull verður þetta mugnet!
22. nóvember 2006 klukkan 09:44
maddi
 
Daginn kæru fyrverandi samnemendur. Mér þykir leitt hversu ´lítið ég hef komið að skipulagningu þessara viðburðar en ég stefni á að gera bara tvöfallt meira þegar þetta verður tendurtekið eftir 10 ár.
Ég reykna fastlega með að mæta á þennan hitting og létt þá vita sem mér datt í hug í dag.
Ég vil samt enþá að við tökum okkur saman og fáum Æsí spæsí Lionsy til að trilla líðinn á samkuntunni okkar:) Yrði algjör killer
27. nóvember 2006 klukkan 21:52
maddi
 
Ég er my -y- áráttu en auðvitað meina ég reikna en ekki reykna.
27. nóvember 2006 klukkan 21:53

Skrifa athugasemd