Nú teljum viđ niđur...

Auglýsing

Könnun

Stóra búningamáliđ?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Gleđileg jól :)

25. desember 2006 klukkan 20:45
Ég vil byrja á því að þakka kærlega fyrir mig, síðasta föstudagskvöld var ógleymanlegt og frábær skemmtun. Við í nefndinni erum alveg ótrúlega ánægð yfir því hvernig kvöldið gekk fyrir sig, þetta tókst framar öllum vonum - maturinn var frábær, fíllinn flottur, gítarspilið ómissandi og allir virtust hafa komið með góða skapið með sér. Það eina sem vantaði var að töluvert af fólki sem ætlaði að koma langt að hætti við á síðustu stundu, þeirra var saknað og vonandi að þeir komi bara næst :)


Ég er ekki með alveg á hreinu hversu mikill afgangur var, hann hefði mátt vera meiri en ég get fullvissað ykkur um að hann rennur allur í gott málefni - í sjóð gamals Árskógsskælings sem er eins og er úti í Svíþjóð að berjast við illvígan sjúkdóm.


Að lokum vil ég bara segja gleðileg jól, farsælt nýtt ár og takk fyrir síðastliðin :) Og að vonandi gefst tími á næstunni til að setja myndir hérna, nýjar bekkjamyndir og þannig! :)


F/hönd nefndar - Eyrún Elva '86
Nefndin
1 athugasemd

....

19. desember 2006 klukkan 05:43
jæja það er búið að vera nóg að gera hjá nefndinni síðustu daga.. vorum a´fundi á fimmtudaginn, og mættum heim til mín að græja skreitingar og búninga og fleira í kvöld..
það er 39 manns búnir að borga síðast þegar ég tékkaði það eru þau:

Hólmar, Maddi, Jói, Birkir, Anný, Elvar
Damma, Lísbet, Fjölnir
Inga, Elva, Gunnar, Palli, Skarphéðinn, Billa, Steingrímur
Jón Geir, Sigurlaug, Dandi, Hanna, Jónas, Gulli, Sindri, Hófý
Eyrún, Svenni, Hlynur, Trausti, Níels, Elín
Grímur
Magga, Steinunn, Hermann, Jakob, Hannes, Halldór, Hannes

svo er 12 kennurum og starfsmönnum boðið... :)

á reyndar eftir að fá update frá helginni, vona að einhverjir hafi bæst við :)


ætluðum að taka það fram hérna hvað það er sem við erum að borga fyrir það er,
Salur, Matur, fordrykkir, gos, fíllinn, skemmtanaleyfi, skreytingar og borðbúnaður..

við fengum tvo styrki frá Níelsi Jónssyni og BHS.


og mun allur afgangspeningur fara í styrktarsjóð fyrir Jóhann Valdimar úr árgangi 83. sem er núna í meðferð í Svíþjóð vegna veikinda..
og ef einhverjir vilja styrkja hann sérstaklega þá er hann með styrktar reikning, eða þið getið lagt hingað inn og við komum því áleyðis beint í sjóðinn hans....
mig langar að benda á það að hann er með síðu á
blog.central.is/joi_v


en annars þa´er þetta bara allt að smella, bara næstum því 3 dagar í þetta og krossleggjum bara fingur að þetta gangi allt vel, og veðrið verði gott og allir komist heilir til okkar :D

takk fyrir mig Inga Rut
Nefndin
16 athugasemdir

JĆJA....

08. desember 2006 klukkan 15:52
Fundurinn var í gær... og var mikið rætt fram og til baka um öll þessi mál... ekki voru allir sammála um öll málin, en við komumst að niðurstöðu að lokum, og vitum við það að hvað sem við hefðum gert í þessari stöðu þá hefðu alltaf einhverjir orðið ósáttir.. en við skoðuðum þetta vel og hringdum út um allt, og niðurstaðan er þessi...
 að það var hætt við rútuna inn á Akureyri um nóttina...
 
vegna þess;

í fyrsta lagi: er 20 ára aldurstakmark á kaffi AK. og Amour, og við erum með tvo árganga sem eru 18 0g 19 ára, og komast því ekki inn á staðin...

í annan stað: þá er sjallinn lokaður þetta kvöld....

í þriðja lagi: er hún mjög dýr...


en þess í stað höfum við ákveðið að vera í árskógi aðeins lengur og skemmta okkur saman..  :D

...................

en búninga málin voru líka rædd eins flest annað, og komumst við að þeirri niðurstöðu að "flestir" í nefndinni verða í búningum.. en þið þurfið þess ekki hin.. en að sjálfsögðu megið þið það.. en það eru í rauninni engar reglur um.. fólk má mæta eins og það vill....

....................

við viljum minna fólk á að borga.... fyrir 10. Desember, það er mjög mikilvægt að fólk borgi á réttum tíma, að því að allt þarf að kaupa og borga fyrirfram...
en þeir sem ekki borga fyrir 10. Des. eru sjálfkrafa afskráðir af mótinu.. og vonumst við því eftir því að allir borgi á réttum tíma svo það verði ekkert vesen...

1187-05-400700 og kt. 080483-4499

2000 kr á mann, og gott væri að allir gætu verið búnir að borga fyrir 10. des! :)



....................

þetta er orðið svo stórt hjá okkur að við þurfum væntanlega skemmtanaleyfi og ábyrgðarmenn, og allt kostar það peninga, og fara rútu peningarnir í það og smá áfengi og snakk um kvöldið..
....................

en ég var svo beðin um að taka það fram að maturinn sem í boði verður.. verður fiskréttur með rækjumog grænmeti, hrísgrjónum og kartöflum, brauð og pesto.. okkur fannst það tilvalið þar sem það eru að koma jól og allir að fara að borða yfir sig af kjöti, og til þess að halda kostnaði okkar og ykkar í algjöru lágmarki...

ég held að flest sé komið hérna sem kom fram í gær...

that's all folks! Inga Rut
Nefndin
38 athugasemdir

góđir hálsar

05. desember 2006 klukkan 05:08
jæja krakkarnir mínir......

vegna mikilla fyrirspurna, vandræða og annað verðum við halda fund á fimmtudaginn klukkan 19.30 heima hjá Möggu.. fyrir nefndina það er að segja :)

við erum búin að hugsa þetta mikið og búin að fá margar fyrirspurnir og við eiginlega sjáum ekki fram á annað en það þurfi að verða einhverjar smá breytingar á skipulaginu.. en þetta verður samt að mestu með sama sniði..

við látum ykkur vita hérna á síðunni hvort eða hverjar breytingarnar verða :D

en ég vona að allir í nefndinni sjái sér fært að mæta vegna þess að núna styttist óðum í þetta og við verðum að negla allt niður á fimmtudaginn...

en annars þá fórum við, ég, Jón Geir, Sigurlaug, Magga og Dandi með boðskortin til kennarana og starfsmanna skólans í dag, og tóku þau öll mjög vel í þetta og ætla flest að mæta...

en annars þangað til næst
Inga Rut
Nefndin
14 athugasemdir

stóra búningamáliđ

03. desember 2006 klukkan 20:16
þetta finnst mér helvíti góð nálgun á málinu.. stóra búningamálið.. að því að mér finnst algjörlega verið að gera "úlf" úr mýflugu hehe..

en ég persónulega get ekki séð hvað vandamálið er.. þó svo að ég kannski skilji alveg suma.. en það er enginn að biðja ykkur um að vera uppstrýluð í þvílíku múnderingunni.. bara eitthvað smá..

en ég veit um nokkra sem eru búnir að redda sér búningum, eða kaupa sér búninga, og margir búnir að leggja vinnu í að sauma sér búninga.. þannig að mér finnst það rosalega ósanngjarnt ef ætti að fara að beila á því núna.. getum við ekki bara haft þetta svoleiðis að þeir fá verðlaun sem mæta í búningum.. og besti búningurinn fær svo verðlaun líka??

en það má alveg mæti sem maður sjálfur.. en það er dáltið eins og að mæta í slorgallanum í sjallan.. en allt í lagi.. þið ráðið þessu sjálf..

höldum fund, keyrum út boðskortum, förum í bæinn að versla í skreytingar og verðlaun og förum að gera skreytingar....

við erum að tala um 19 daga gott fólk!!

en vil minna alla á að borga reikningsnúmerið er hérna fyrir neðan..

Inga Rut.
Nefndin
8 athugasemdir

jćja!

28. nóvember 2006 klukkan 00:02

Við erum komin með þennan fína reikning;
1187-05-400700 og kt. 080483-4499

2000 kr á mann, og gott væri að allir gætu verið búnir að borga fyrir 10. des! :)

kv. Damma.


Nefndin
10 athugasemdir

minna á..

22. nóvember 2006 klukkan 20:51
vil minna nefndina á fundinn sem verður heima hjá mér föstudaginn 24 nóvember kl 21.00. til að fara yfir skráningu og loka lagfæringar á dagskrá og fleira.. vona að sem flestir sjái sér fært að mæta :D

annars er ég rosalega ánægð með þá sem ég er búin að heyra í enda verður alveg þrusu mæting og kominn mikill spenningur í liðið :D

annars fékk ég orðsendingu að sunnan, og athugað með car pool að sunnan.. sem er sniðug hugmynd og endilega reynið það.. getið púslað ykkur saman hérna inná eða haft samband við mig og fengið númer :)

annars er bara allt að gerast í undirbúning og´lítur allt ljómandi vel út :)

takk fyrir mig Inga Rut p.
Nefndin
11 athugasemdir

jćja

17. nóvember 2006 klukkan 05:28
núna vona ég allir séu búnir að vera rosalega duglegir að hringja í fólk og taka niður skráningu á fullu.. það væri gaman að heyra í hinum hvernig gengur og svoleiðis..
í mínum bekk er ég búin að ná á Elvu, Gunnari, Steina, Einari, Skarphéðni og Marsibil, og ætla þau öll að mæta nema Einar sem verður fyrir sunnan.. ég finn ekki Óskar Pétur og næ ekki á Palla, en ef þið heyrið í þeim eða af þeim megið þið segja þeim frá þessu eða frá því að ég sé að leita að þeim :)

annars ef einhverjir eru að skoða þessa síðu sem ekki er búið að hringja í, enn voru í árskógarskóla á þessum árum getið þið skráð ykkur hjá þessum aðilum

árgangur 82 Maddi 8622211 eða Hólmar 6956381
árgangur 83 Lísbet 8686735
árgangur 84 Inga Rut 8688808
árgangur 85 Jón Geir 8651991
árgangur 86 og 87 Svenni 8673900
árgangur 88 Magga 8476916

og við að sjálfsögðu vonumst til að sjá sem flesta, og vonum að flestir sem maður hefur ekki hitt svo lengi lengi sjái sér fært um að koma, þótt tímasetningin sé ekkert rosalega góð upp á þá sem búa langt í burtu...

en það sem strákarnir voru að ræða um í commentunum á hinni færslunni er það að meðal skemmtiatiða er Fíllinn með uppistand.. ef einhver veit ekki hver fíllinn er þa´var hann kosinn fyndnasti maður íslands fyrir nokkrum árum síðan og er með klikkað uppistand sem verður gaman að hlusta á og veltast um af hlátri með ykkur..

annars er fátt nýtt að frétta nema það að ég er mjög ánægð með það hvað fólk tekur vel í þetta, og er spennt fyrir þessu, alveg sama við hvern maður talar, allir mjög ánægðir með þetta, og vonum bara að allt gangi upp :D

annars heyrði ég það í útvarðinu um daginn að 22. Desember næstkomandi er alþjóðlegur dagur fullnægingarinnar.. bara gaman að því og langaði að deila því með ykkur...

já og svo eru það náttúrulega búningarnir, er búin að liggja með höfuðið í bleyti og vona að þið séuð að því líka, svo við verðum öll í flottum búningum þegar við förum í bæinn um kvöldið ;)
 en annars vona að sem flestir viti af þessari síðu, og þið sem lesið hana megið endilega koma því áfram að hún sé til ;)

takk fyrir mig
fyrir hönd nefndar Inga Rut
Nefndin
11 athugasemdir

góđann og bessađann

09. nóvember 2006 klukkan 21:43
jæja núna er þetta allt að detta í gang, vonandi flestir búnir að hringja í flesta og svonna.. ;)
það sem er komið á hreint varðandi þetta árgangablót eins og við kjósum að kalla það er;

fordrykkur

það verður matur ala Gunnar Njáll

myndasýning

Skemmtiatriði

kennaraheimsókn

gítarspil og söngur

rúta inn á Akureyri um kvöldið

og allir að mæta í búningum (hvernig búningum sem er)

og að sjálfsögðu til að skella eins og einni klisju með; að mæta með góða skapið...

áætlaður kostnaður er u.þ.b 2000 kr á mann.

endilega koma með hugmyndir og cemment ef þið viljið einhverju bæta við eða taka út, endilega heyra frá sem flestum, enda erum við að gera þetta öll saman til að gera þetta sem skemmtilegast ;) er það ekki?
....................

en við margir ströndungar erum búin að tala um það í mörg ár að fara að hittast mörg saman, og er ég búin að reyna að koma því á í nokkurn tíma.. fékk svo loksins drifkraftinn hann Jón Geir í lið með mér og við smöluðum í þessa góðu nefnd, tveir úr hverjum árgangi, og eru það;
"82 Hólmar og Maddi
"83 Damma og Lísbet
"84 Inga og Elva
"85 Jón Geir og Sigurlaug
"86 Eyrún og Svenni
"88 Magga og Steinunn

og erum við flest búin að fara á tvo fundi þar sem allt var tekið í gegn getsalistinn undirbúinn og dagskráin skipulögð..
vonandi omast sem flestir og verum dáltið dugleg að nota þessa síðu, fyrst Eyrún var svo dugleg að búa hana til :D

takk fyrir mig..
fyrir hönd nefndar Inag Rut P.
Nefndin
11 athugasemdir

Síđa árgangamóts Árskólgarskóla!

08. nóvember 2006 klukkan 04:30
Hér mun rísa síða tileinkuð endurmótum árganga '88-'82 úr Árskógarskóla, sem munu verða þann 22. desember nk. Eins og sjá má eru hér að vestan komnir nokkrir tenglar sem vísa í síður einhvurra þeirra er mætast - ef þín síða er ekki þarna láttu vita! Annars er allt í vinnlsu hér, en vonandi verður eitthvað notagildi af þessari síðu!

Kv. f/ hönd nefndar - Eyrún Elva
Nefndin
1 athugasemd